
Það er heldur einmannalegt hjá mér í Köben. Gummi minn heitt elskaði maður er snúinn aftur til vinnu á Íslandi sem og þriðja hjólið í sambandinu síðastliðna vikur eða svo hann Steini. Íris systir er farin með vinnunni sinni til Íslands. Sem verður ekkert frí fyrir hana því hún er að fara með 9 börn frá Fredriksholm í sumarfrí á Íslandi! En samt einstaklega spennandi fyrir börnin að fá að koma til Íslands :) Svo ætla Karen og Auður að yfirgefa mig þann 26.júlí og skella sér til Rohdos með MS... Þeirra verður sárt saknað! En í staðin fæ ég hana Hönnu mína sama dag svo þetta verður nú allt í góðu! Tóta Djamm og Gunnhildur vinkona hennar koma síðan þann 31.júlí og Anna Lind Interailfari kemur 1.ágúst svo það verður aldeilis stelpufans hérna hjá okkur rottunum!! :D
En vitiði hvað!?!? Ég mætti eins og vanalega í vinnuna kl.06:00 í morgun illa meigluð og fersk og fæ þær fréttir að ég eigi að taka með mér 2 svarta menn og láta þá hjálpa mér að þrífa uppi hjá mér og ég bara eitthvað....Jaaaáá! OK!! Ekki alveg að meika það! En allt í gúddí! Málið var samt ekki að þeir væri svartir heldur hafði ég nánast ekkert að gera fyrir sjálfa mig og hvað þá 2 aðra því það eru allir í sumar frí og nánast enginn umgangur um húsið.... En ég reddaði mér og sagði þeim bara að skúra eitthvern gang sem þurfti samt ekkert að skúra...skiptir ekki öllu en þegar þeir voru búnir komu þeir inn til mín það sem ég var að þurka af inni á bókasafni og spurðu hvað ég heiti og ég eitthvað svaraði bara og sagðist heita Selma og þá sagði annar: "Ertu Arabi"? Er ég Arabi???? Hvernig sérðu það út?? Whaaattt??? Ég fór bara að hlæja og sagðist vera Íslendingur! Og hann eitthvað nú ok... Ég er nebbla Arabi og þekki svo margar konur sem heita Selma! Okey mamma og pabbi ef þið lesið þetta skamm fyrir að skíra mig Araba nafni!! Dóttir ykkar er bara í sakleysi sínu að spóka sig í DK og fólk heldur að hún sé Arabi!!! Og ekki nóg með það þá er ég skjanna hvít og rauðhærð, ég held að það séu ekki margir Arabar þannig útlítandi!! Guð á ég að gráta eða hlæja?? Það er spurning?



7 comments:
Æjæj Selma mín það ætlar ekki af þér að ganga....hins vegar þá hef ég alltaf velt því fyrir mér hvort þú sért af aröbum komin...en kannski er það bara þessi dökki húðlitur þinn sem er að gabba mann....
Þegar þú segir það þá hef ég oft velt þessu fyrir mér hvað þú minntir mig á... en aldrei komið því neitt fyrir mig... en þetta er eins og að sjá ljósið... ;) en núna er komið að því ég er komin á fremsta hlunn með að panta mér far til kóngsins og þín í leiðinni... ;) það var svo frískandi að heyra frá þér þegar ég var að brjóta saman þvottinn á næturvaktinni alveg við það að gefast upp... fékk góða lýsingu á þér í gummistovler.... hahaha ;)
Arabi smarabi! Já Kata mín ég er ólm í að fá þig til mín! Það er reyndar fullt hús frá 31.júlí-7.ágúst! Hanna kemur 26.júlí-6.ágúst, og svo kemur Tóta Djamm (Gumma sys) og vinkona hennar 31.júlí-7.ágúst og svo erð það Kindin eina sem hefur ákveðið að lengja Interailið sitt og koma 1.ágúst-7.ágúst!! En hvenær vilt þú koma elskan??
ég er ekki búin að vinna fyrr en 10. eða 13. ágúst veit ekki hvort þannig að einhvern tíman eftir það... :)
hehehe eg hef verid spurd hvort eg vaeri djori...... en tu vaerir samt an efa gott efni i araba.. en siju in 2 weeks my lovergirl.. 1love from Budapest
Já Kata mín þú ræður elskan! Ég á flug heim til Íslands 23.ágúst svo þú getur komið þegar þú ert búin að vinna ef þú vilt! Ég vil fá þig það er ekki spurning! ;)
En já Anna mín ég var að spá í að hoppa út í búð á morgun og kaupa mér alabaklút og mæta vafin um hausinn í vinnuna! Hvernig væri það???
Og já það styttist ekkert smá í að þú komir! Ég man ekki hvort ég var búin að segja þér að Tóta Djamm og vinkona hennar koma einum degi á undan þér og fara sama dag heim! Svo það verður rosa stuð á JM Thieles vej þegar þið mætið!! :d
elsku (anti)arabinn minn! ég get ekki beðið eftir að koma og krútta þig... kun en uge:D hils til araberne dine venide Hannsi
Post a Comment