Thursday, July 19, 2007

"Gesta-fíaskó!" :)

Það er allt og en þá meira að gerast í lífinu hérna í Köben! :) Mamm og Ósk bestaskinn ákváðu að skella sér til mín og pöntuðu far hingað út! Svo þær koma á mánudaginn næsta og fara sama dag og Hanna kemur! Svo þær ná meira að segja að hittast hérna á J.M. Thieles vej! Reyndar kemur vinkona hennar mömmu líka með svo það verður stanslaust stuð hjá mér fram til 7.ágúst! :D

See ya! :)

Salamon Lax ( Eins og fólk er farið að kalla mig þarna á Íslandi!)


Wednesday, July 18, 2007

Roskilde **myndir**

Það eru komnar inn myndir af Roskilde 2007!!! :D


http://www.pbase.com/selmahauks


Selbertína Lax

Tuesday, July 17, 2007

Ert þú Arabi???....


Það er heldur einmannalegt hjá mér í Köben. Gummi minn heitt elskaði maður er snúinn aftur til vinnu á Íslandi sem og þriðja hjólið í sambandinu síðastliðna vikur eða svo hann Steini. Íris systir er farin með vinnunni sinni til Íslands. Sem verður ekkert frí fyrir hana því hún er að fara með 9 börn frá Fredriksholm í sumarfrí á Íslandi! En samt einstaklega spennandi fyrir börnin að fá að koma til Íslands :) Svo ætla Karen og Auður að yfirgefa mig þann 26.júlí og skella sér til Rohdos með MS... Þeirra verður sárt saknað! En í staðin fæ ég hana Hönnu mína sama dag svo þetta verður nú allt í góðu! Tóta Djamm og Gunnhildur vinkona hennar koma síðan þann 31.júlí og Anna Lind Interailfari kemur 1.ágúst svo það verður aldeilis stelpufans hérna hjá okkur rottunum!! :D
En vitiði hvað!?!? Ég mætti eins og vanalega í vinnuna kl.06:00 í morgun illa meigluð og fersk og fæ þær fréttir að ég eigi að taka með mér 2 svarta menn og láta þá hjálpa mér að þrífa uppi hjá mér og ég bara eitthvað....Jaaaáá! OK!! Ekki alveg að meika það! En allt í gúddí! Málið var samt ekki að þeir væri svartir heldur hafði ég nánast ekkert að gera fyrir sjálfa mig og hvað þá 2 aðra því það eru allir í sumar frí og nánast enginn umgangur um húsið.... En ég reddaði mér og sagði þeim bara að skúra eitthvern gang sem þurfti samt ekkert að skúra...skiptir ekki öllu en þegar þeir voru búnir komu þeir inn til mín það sem ég var að þurka af inni á bókasafni og spurðu hvað ég heiti og ég eitthvað svaraði bara og sagðist heita Selma og þá sagði annar: "Ertu Arabi"? Er ég Arabi???? Hvernig sérðu það út?? Whaaattt??? Ég fór bara að hlæja og sagðist vera Íslendingur! Og hann eitthvað nú ok... Ég er nebbla Arabi og þekki svo margar konur sem heita Selma! Okey mamma og pabbi ef þið lesið þetta skamm fyrir að skíra mig Araba nafni!! Dóttir ykkar er bara í sakleysi sínu að spóka sig í DK og fólk heldur að hún sé Arabi!!! Og ekki nóg með það þá er ég skjanna hvít og rauðhærð, ég held að það séu ekki margir Arabar þannig útlítandi!! Guð á ég að gráta eða hlæja?? Það er spurning?


Wednesday, July 11, 2007

Roskilde 2007.......

.......var BLAUT!!! Og aftur BLAUT!!