
Minn heitt elskaði ástmaður er væntanlegur hér annað kvöld!
Og svo virðist sem það sé bara allt að gerast! Ég fór að passa í fyrsta skipti 2 sætar íslenska stelpur áðan og þær eru æðislegar!! :) Snæfríður Birta og Ísabella Erna. Svo hringdi Kindin áðan og var með þær skemmtilegu fréttir að hún væri að koma 1.ágúst. Þóra Hrund er væntanleg blindfull þann 3.júlí til mín og ætlum við að rúlla inn á Glade Gris eftir gott trúnó og nokkur ópal staup! :D Ekki nóg með það að þá eru El Tvíbbos Anna Rut og Ásta Ýrr ásamt Tótu og Unu líka væntanlegar 3.júlí svo enn má bæta í "trúnóhópinn" og ópalstaupunum fjölgar hratt! ;)
Roskilde er á næsta leiti og ef það fer ekki að hætta að rigna þá veit ég ekki hvað ég geri!! Reyndar eru gúmmistígvélin og regnkápan mín svo helvíti smekkaraleg að ég verð alveg illa töff þótt það sé rigning!
Sólin er samt ofar á listanum.... ég hef nú alveg verið í pollagalla heilan dag ef ekki meira í sól!! Hanna ætti að vita það best!! :D
En El Rattos kveðja með stæl ;)








