Tuesday, May 29, 2007



Þennan fák keypti ég í dag!





Ég valdi blátt til heiðurs Önnu Lind (blákonunni miklu)! En vandinn er sá að ég get ekki fundið nafn sem mér finnst hæfa því! Ég segi því af því að ég hef heldur ekki ákveðið hvort kynið þetta er! Anna Lind kom reyndar með eina nafnhugmynd sem var Balli blámaður ég er að spá í að geyma það aðeins! Finnst það ekki alveg nógu smekkaralegt!


Bless í bili um von um margar nafnhugmyndir!


Seli litli

Monday, May 28, 2007

Borgin mín

Já þetta er sko borgin mín! Ég er komin heim! Vá... Ég lennti í hádeginu í dag og þetta er búið að vera æðislegur dagur :) Navid bakaði pönnukökur í tilefni dagsinns og við systur röltum um allt Fredriksberg og enduðum á því að kaupa okkur bjór og setjast inn í garð og hafa það notalegt! Á morgun fer ég í hjólaleiðangur þar að segja að kaupa méfr hjól og viti menn ég er alltaf að græða! Það er tilboð á "bedstemor" hjólunum hérna í næstu götu! Þannig að ég er að spá í að hjóla aðeins niður í bæ á morgun og versla pínu og fá mér bjór í boði Danaveldis!

Thursday, May 24, 2007

Fyrsta bloggið...

Hér hef ég ákveðið að rita niður nokkrar sögur frá Köben í sumar! En fyrir þá sem ekki vita er ferð minni heitið til Köben á mánudaginn næsta þann 28.maí.. og er heimkoman ekki ákveðin en! En svo við minnumst líka á það þá er hvíti hatturinn í höfn! Já ég verð stúdent næsta laugardag! Og verður því flæðandi ættingja partý (flæðandi áfengi og ættingjar) í Hagalandinu!

Næsta blogg verður skrifað í sjálfri Köben! :D

Selma