Ég kem heim annaðkvöld!! Svo ég vonast til að hitta sem flesta um helgina!! :) Annars held ég að ég skelli mér á Vegamót í hádeginu á föstudaginn, vonast nú líka til að hitta eitthverja vini og vandamenn þar! ;)
Afsakið bloggleysið á dömunni! Það er bara búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma í að setjast við tölvuna! :) Mamma, Helena og Ósk systir komu í nokkra daga og var það mjög notalegt að fá þær til mín! Síðan kom hann Hansi minn og fékk ég að kúra með henni í rúma viku sem var ljúft :) Tóta Djamm/Tankur og Gústi Sleikur mættur hressari sem aldrei fyrr og voru í viku! við héldum galakvöld, kokteilpartý og svo síðast ekki sko alls ekki síst sjóræningjapartý og gerðu allt vitlaust í garðinum svo ég er litin hornauga í hvert skipti sem ég labba út úr húsi! Enda vorum við í búningum með sverð, reyktum vindla (eða bara Tóti!).... Drukkum! Hanna Kristín Magnúsdóttir var skipstjórinn á skipinu mikla sem var innkaupakerra sem við stálum og bar hún á sér sverð sem var án gríns 130 cm!!! Hahahahahhahaha!!!!!!! Svo keyptum við leynigest sem var hún Hannah! Hún fékkst í helvíti smekkaralegri búð á Istegade :D Og silgdi hún um í skipinu allt kvöldið með sjóræningja grímu, gull lokk í snípnum og reykti með "skvísunni" hahahahah!!! :D Þóra Sif og Fannar mættu galvösk í partýið og við tók Þóru og gerði hana af alvöru sjóræningja með því að hrækja á kol og maka hana svarta og skítuga!! Síðan kom Kári og Mæja og trylltu líðinn!! :) Ég held bara að myndirnar segji restina!
Gott að minnast á það að ég var að hringja í Önnu Lind og hún sagðist nú ekki getað talað lengi því hún væri í flugvél á leið til London!! Það eru ekki allir sem svara í símann í háloftunum en það er allavegana Kindin eina sem gerir það!!! :D Eðlilegt!!