
Annars er hálf ættin mín komin til okkar :) Þau eru með æðislega íbúð úti á Christianshavn, alveg ný og risa stór! Við vorum hjá þeim í gær og fórum út að borða saman.
Og síðast en alls ekki síst þá er ég komin með auka vinnu í sumar! Ég setti mig í samband við íslenskafjölskyldu sem er að flytja hingað út núna í júní og vantar pössun fyrir 9. og 5.ára dætur þeirra og ég var fyrir valinu og fæ þá auka pening því ég verð að passa þær tvö kvöld í viku. Og svo ef mamman kemst inní Listaháskóla hérna úti þá vilja þau ráða mig sem Au Pair í haust. Sem er auðvitað rosalega spennandi!!
Það bíða mín heitar pönnukökur og kaffi! Navid er svo myndarlegur!
Ykkar
Selma
4 comments:
heheh! snilld! vá hvað þetta með Navid einhvernvegin passaði ekki inní...alltíeinu bara "Navid er svo myndarlegur!" hehehe, en það er frábært með au pair dæmið!! nú krossar maður bara puttana að pían komist inn!! :D have fun!!
hæ elskan.. þú ert búin að tryggja þér miða á hróa er það ekki elsku litla selma? ég er að koma og hitta þig þann 4.júlí og það verður ekki frásögu færandi skal ég segja þér. Kv tófó lófó eða tódí o'brian
Já Stella mín það er vonandi að daman komist inn í skólann svo ég fái jobbið... Og Þóra mín ég hélt að þú værir hætt við Hróa?? Eða Steinunn var eitthvað að tala um það við mig... En geggjað! :) Það verður vangefið gaman hjá okkur!!! :D :D
Sæl sweety! Vonandi og án efa er brjálað fjör á þér í DK, hafðu það rosa gott mús:*
Kv. Katie
Post a Comment