Monday, May 28, 2007

Borgin mín

Já þetta er sko borgin mín! Ég er komin heim! Vá... Ég lennti í hádeginu í dag og þetta er búið að vera æðislegur dagur :) Navid bakaði pönnukökur í tilefni dagsinns og við systur röltum um allt Fredriksberg og enduðum á því að kaupa okkur bjór og setjast inn í garð og hafa það notalegt! Á morgun fer ég í hjólaleiðangur þar að segja að kaupa méfr hjól og viti menn ég er alltaf að græða! Það er tilboð á "bedstemor" hjólunum hérna í næstu götu! Þannig að ég er að spá í að hjóla aðeins niður í bæ á morgun og versla pínu og fá mér bjór í boði Danaveldis!

3 comments:

Anonymous said...

Vá það eru "bara" 36 dagar þangað til ég kem, þetta verður mergjað:Þ Þú veist að djobbið þitt þarna úti er að kynnast góðum og myndó mannkostum svo við lufsurnar höfum örugglega eitthvað fyrir stafni í kóngsins köben hehe!!
hlakka til að sjá þig Seli litli;)
ONE LOVE

Anonymous said...

Jii Selma! vá þú ert svo heppin!! vertu dugleg að blogga stelpa! ;) ;*

selmahauks said...

Já ég verð vonandi komin með góðan hóp karlmanna á mitt band sem ég kynni ykkur fyrir! Þeir verða alveg sólbrúnir og seiðandi!